Arion banki og Íslensk verðbréf eru að hefja einkaviðræður um kaup þess síðarnefnda á öllum hlut dótturfélags bankans í Blikastaðalandi. Íslensk verðbréf fara í viðræðurnar fyrir hönd óstofnaðs sérhæfs sjóðs um kaup á hlutafénu. Fasteignaþróunarfélagið Klasi verður kjölfestufjárfestir í sjóðnum og þróar verkefnið ef af verður.Stefnt er að mikilli uppbyggingu á Blikastaðalandi.Samkvæmt tilkynningu Arion banka verður kaupverðið innan þeirra 14 til 16 milljarða sem kynntir voru sem verðhugmynd þegar ákveðið var að selja Blikastaðaland.Áform eru um mikla uppbyggingu í Blikastaðalandi.RÚV / Ragnar Visage