Ejler Borch fæddist 1925 og hann var ekki orðinn 19 ára þegar hann gekk til liðs við samtök sem gengu undir nafninu BOPA, Borgerlige Partisaner eins og samtökin heita á dönsku, og tók þátt í árásum eða spellvirkjum þessara samtaka á lokaárum síðari heimsstyrjaldarinnar.Líkt og margir aðrir sem þátt tóku í andspyrnunni gegn Þjóðverjum hefur hann þó haft hljótt um þennan afdrifaríka tíma þar til fyrir skemmstu, þegar rithöfundurinn Anders Hauch Fenger hafði uppi á honum. Eftir nokkra eftirgangsmuni féllst Ejler á að segja sögu sína. Ejler er kvikur á fæti, segist fara í ræktina þrisvar í viku og sjá um sig sjálfur, hann lét sig ekki muna um að snara sér til Íslands til að kynna þýðingu á bók sem skrifuð hefur verið um hann og kemur nú út í íslenskri þýðingu Þorvaldar Þorvaldssonar.Þjóðverjar