Hörður Arnarson, sem nýlega lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, vill að fyrirkomulag Samkeppniseftirlitsins verði endurskoðað í lögum. Hann telur að skýra þurfi betur aðskilnað rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot og viðurlög. Þetta kemur fram í aðsendri grein hans í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýnir vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins í máli gegn fyrirtækinu.