Allt að 750 íbúar Oleshky geta yfirgefið bæinn í dag

Allt að 750 íbúar hernumda úkraínska bæjarins Oleshky í Kherson-héraði verða fluttir á brott með 25 rútum í dag. Dmitry Lubinets, mannréttindafulltrúi Úkraínuþings, greindi frá þessu í morgun og kveðst telja óhætt fyrir íbúa að yfirgefa bæinn.Lubinets áréttaði jafnframt mikilvægi þess að sex daga vopnahlé haldi sem hófst á þriðjudag og Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti um fyrir viku. Um það bil 2.000 hafast enn við í Oleshky af þeim 24 þúsund sem bjuggu þar fyrir allsherjarinnrásina. Rússar hernámu bæinn mjög snemma.Ekki er vitað hversu margir vilja þekkjast boð um að verða fluttir brott en margir vilja vera þar áfram að sögn úkraínskra embættismanna. Rússar hafa ekki hleypt neyðarvistum inn í bæinn síðan í maí en nú er bílalest hlaðin matvælum, vatni og lyfjum á leiðinni
Allt að 750 íbúar Oleshky geta yfirgefið bæinn í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar