Sjálfstæði miðillinn Novaya Gazeta hættir störfum

Stjórnendur sjálfstæða rússneska dagblaðsins Novaya Gazeta segja að starfsemi þess verði algerlega hætt 9. nóvember. Í yfirlýsingu Sergei Sokolov aðalritstjóra blaðsins segir að ofsóknir stjórnvalda hafi gengið af því dauðu en þau skilgreindu það sem erlendan útsendara fyrr í haust. Þeirri aðferð hefur verið beitt til að kveða niður andóf.„Yfirvöld og leyniþjónustur landsins hafa þvingað ritstjórnina til að hætta útgáfunni.“ Fyrrverandi aðalritstjóri Dmitry Muratov fékk sama stimpil og steig til hliðar haustið 2023 til að hlífa blaðinu fyrir þeim lögfræðilegu þvingunum sem fylgdu.Muratov hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið 2021 ásamt Mariu Ressa fyrir ötula baráttu sína og vinnu í þágu tjáningarfrelsisins í Rússlandi.Novaya Gazeta hóf göngu sína árið 1993 og er heimsþekkt fyrir rannsóknarblað
Sjálfstæði miðillinn Novaya Gazeta hættir störfum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar