Flóttamannaleið var lokað við Vífilsstaðavatn í morgun vegna umferðarslyss. Búið er að opna veginn aftur.Bíll valt og er verið að huga að meiðslum eins sem í honum var. Ekki er þó talið líklegt að meiðslin séu þess eðlis að flytja þurfi viðkomandi á sjúkrahús, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.Löng bílaröð myndaðist þar sem fólk komst ekki leiðar sinnar vegna bílveltunnar.Vegagerðin bendir á að hálkublettir séu hér og þar á höfuðborgarsvæðinu og biður fólk að aka varlega.Fréttin hefur verið uppfræð.RÚV / Edda Sif Pálsdóttir