Heilsugæslur víða um landið standa nú í stórræðum við að bólusetja forgangshópa vegna inflúensu. Börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára eru hinsvegar ekki sprautuð í ár heldur boðið upp á nefúða. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir um glænýja tækni að ræða, sem virki eins vel og stunga.