Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið í aðsendri grein í Morgunblaðinu og hvetur til þess að fyrirkomulag samkeppniseftirlits verði endurskoðað. Hann vill að aðskilnaður rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot verði skýrður betur.Tilefnið er rannsókn Samkeppniseftirlitsins á þátttöku Landsvirkjunar í útboði Landsnets á raforku vegna flutningstapa 2017–2021 og ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi úr gildi 1,4 milljarða sekt á fyrirtækið.Hörður segir að annmarkar á rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafi ekki verið bundnir við formsatriði og vísar til þess að þeir lutu að því að markaðir hefðu ekki verið skilgreindir með fullnægjandi hætti. Auk þess hafi rannsókn á skilyrðum og mögulegum skaðlegum áhrifum verið ófullnægjandi. AÐKOMA LANDS