Finnska lögreglan hefur hafið sakamálarannsókn vegna uppbyggingar Google á gagnaverum í landinu. Grunur er um að umhverfislög hafi verið brotin við framkvæmdina.Verkefnið er hluti af áætlun sem Google kynnti í síðasta mánuði og felur í sér 13 milljarða evra fjárfestingu í innviðum fyrir gervigreind í Finnlandi. Google segir þetta vera stærstu fjárfestingu sína í Evrópu til þessa.Þegar framkvæmdir hófust lét Tuike Finland, dótturfélag Google, ryðja skóg og ræsa fram land á fyrirhuguðu uppbyggingarsvæði nálægt bænum Muhos í vestanverðu Finnlandi. Þá hafði umhverfismat hins vegar ekki farið fram eins og finnsk lög gera ráð fyrir.Kari Pakanen yfirlögregluþjónn segir í samtali við Reuters að verið sé að rannsaka hvort starfsemi fyrirtækisins hafi brotið gegn vatnalögum og valdið umhverfistjóni.