Guðmundur Flóki vann til silfurverðlauna á alþjóðlega stigamótinu Dracula Open í taekwondo sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu um helgina. Hann vann fjóra bardaga á leið sinni í úrslit í flokki undir 87 kílóum, meðal annars gegn keppendum sem hafa tekið þátt í Ólympíuleikum eða eru meðal tíu efstu á heimslistanum.Guðmundur Flóki keppir alla jafna í flokki undir 80 kílóum og er þar í 22. sæti heimslistans. Hann keppti þó að þessu sinni í þyngri flokki. „Ég var í rauninni að prófa nýjan þyngdarflokk á mótinu og fór ekki með neinar væntingar. En maður fer nú alltaf inn með sama hugarfarið og reynir að gera sitt besta í hverjum bardaga og komast lengra,“ segir Flóki við RÚV.Guðmundur Flóki Sigurjónsson vann til silfurverðlauna á sterku alþjóðlegu stigamóti í taekwondo í Rúmeníu um helginaþ Hann