Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv

Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Telegram í gærkvöldi.Í borginni Dnipro þar sem um milljón manns býr voru 350 þúsund þeirra án rafmagns eftir að árásir Rússa hæfðu orkuinnviði. Að minnsta kosti 14 manns létust í drónaárás sem hæfði lestarstöð í borginni fyrr í gær.Skömmu síðar voru árásir einnig gerðar á bæina Chernihiv og Kremenchuk.Fyrr í gær var drónaárás gerð á lestarstöðina í Dnipro.EPA / STATE EMERGENCY SERVICE OF UKRAINE HANDOUT
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar