Erin Patterson, áströlsk kona sem var dæmd í lífstíðarfangelsi á síðasta ári fyrir þrefalt morð, tapaði áfrýjun á máli sínu í dag.Patterson komst í heimsfréttirnar árið 2023 þegar hún var handtekin vegna gruns um að hún hefði eitrað fyrir tengdaforeldrum sínum, Don og Gail Patterson, og systur tengdamóður sinnar, Heather Wilkinson, með grænserki.Sveppurinn, sem heitir death cap á ensku, er einn sá eitraðasti í heimi og Patterson matreiddi hann í innbakaðri Wellington-steik sem hún matreiddi fyrir tengdafólkið.Hún var einnig fundin sek um tilraun til morðs á eiginmanni frænkunnar sem lést, séra Ian Wilkinson. Hann innbyrti sveppinn líka en lifði af eftir margar vikur á spítala. SAGÐIST HAFA NOTAÐ GRÆNSERK FYRIR SLYSNI Patterson sagði gestunum að ástæðan fyrir matarboðinu væri að hún hefð