Öll atkvæði hafa verið talin í Ísrael. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, fékk 27 þingsæti og stjórnarblokk hans er með alls 53 sæti. Það dugir þó hvergi nærri til þar sem 61 sæti þarf til að ná þingmeirihluta.Yashar-flokkur Gadi Eisenkots er með 21 sæti en alls er stjórnarandstöðublokk hans með 48 sæti.Arabískir flokkar bæta við sig sögulega mörgum þingsætum en þeir halda þeim 19 sætum sem fyrri niðurstöður bentu til. Fylgi þeirra tvöfaldast næstum á milli ára en á síðasta ári voru flokkarnir með 10 sæti samtals.Flokkarnir eru tveir, Sameiginlegi listinn sem er nú með 12 þingsæti og Ra'am sem er með 7 sæti. ARABAFLOKKAR SAKAÐIR UM KOSNINGASVINDL Aukning á fylgi arabaflokkanna skýrist helst af því að kjörsókn araba í Ísrael jókst um 50% í nýafstöðnum kosningum. Bæði Ne