Í dag hefst kosning starfsfólks Cornell um vantrauststillögu á hendur rektor háskólans, Michael Koltikoff, sem stendur yfir til 6. nóvember. Verði tillagan samþykkt þýðir það ekki að Koltikoff verði samstundins látinn taka pokann sinn, en vantraust væri án efa sterk skilaboð til hans. Stjórn háskólans ræður því á endanum hver stýrir skútunni.