Formaður Kennarasambands Íslands segir óvænt útspil stjórnvalda á þriðjudag hafa sett kjarasamninga kennara í uppnám. Lagt hafi verið til að hvika frá þeirri leið sem lengi hafi verið stefnt að nokkrum dögum áður en frestur til að virkja forsenduákvæði í gildandi samningi rynni út. Ef samningsaðilar nái ekki saman aftur fyrir lok laugardags muni þau neyðast til að virkja umrætt ákvæði.