Doktor í félagstölfræði segir að sé litið til sögunnar sé flokki sitjandi forseta oftar en ekki refsað í þingkosningum en Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu næsta þriðjudag. Afstaða kjósenda til Trumps Bandaríkjaforseta verði neikvæðari með degi hverjum samkvæmt mælingum.„Auðvitað er einn maður sem vofir yfir þeim, það er Donald Trump. Hann er búinn að lita stjórnmál Bandaríkjanna og heimsins alls í áratug. Og þegar kemur að þessum kosningum, svona seint á seinna kjörtímabili, þá er trendið að flokki forseta sé refsað,“ segir Hafsteinn Einarsson, doktor í félagstölfræði. Rætt var við hann í Kastljósþætti kvöldsins.Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu og kjósa til þings næsta þriðjudag og er mikið undir. Doktor í félagstölfræði segir söguna sýna að flokki sitjandi forseta sé refsað í slíkum