Una Jónsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir skýr merki um kólnun í hagkerfinu og viðbúið að dragi úr verðbólgu þegar líður á veturinn. Verðbólgan mældist 5,9% í október og stendur í stað á milli mánaða.„Það er mikil kólnun hérna innanlands. Við sjáum það. Það er kólnun á húsnæðismarkaði, það er kólnun á vinnumarkaði. Við sjáum líka að margir af þessum innlendu eftirspurnarliðum eru aðeins að gefa eftir. Matvara er ekki að hækka jafn mikið og hún var,“ segir Una.Föt og skór séu ódýrari nú en fyrir ári.„Húsnæðisliðurinn er ekki að hækka jafn mikið og áður fyrr. Það er margt sem er að vinna með okkur. En það eru áfram þessar olíuverðshækkanir og svo eru líka gjaldahækkanir hjá hinu opinbera sem eru að valda þrýstingi akkúrat núna. Í þessum mánuði kom inn nýtt komugjald