Þrettán ára Garðbæingur ver frítíma sínum í að læra kínversku, stunda ýmsar kínverskar listir og kynnir Ísland fyrir Kínverjum.Og allt hófst þetta með teiknimyndum um hnellinn pandabjörn sem iðkar bardagalistir.„Þegar ég var lítill, fyrir svona 7 árum, horfði ég á Kung Fu Panda. Þá fannst mér kínverska mjög flott, ég vildi líka læra Kung fu. Þá spurði ég foreldra mína hvort ég mætti læra það. Og ég fór að læra kínversku og kung fu,“ segir Leon Alexander Sebastiansson 13 ára, sem hefur lagt stund á kínversku síðan hann var á sjötta ári.Nú fer stór hluti frítíma Leons í að læra mandarín-kínversku, fræðast um Kína og leggja stund á ýmsar kínverskar listir.Meðal annars hina aldagömlu andlitsskiptalist, sem á rætur sínar að rekja til óperunnar í Sichuan-héraði.Í henni felst m.a. að listamaðurin