Kennarasamband Íslands hyggst virkja forsenduákvæði kjarasamnings sem snýr að virðismati á kennarastarfinu. Náist ekki sátt í málinu við samninganefnd sveitarfélaga fyrir miðnætti á laugardag hefst atburðarás sem enginn nennir að standa í, segir formaður KÍ. Hún gæti leitt til verkfalls kennara næsta vor. VINNAN VIÐ VIRÐISMATIÐ UMFANGSMEIRI EN GERT VAR RÁÐ FYRIR Kennarar og sveitarfélögin virðast nú túlka forsenduákvæði kjarasamningsins með ólíkum hætti. Kennarasambandið segir samningana í hættu en sveitarfélögin segja að enn sé unnið að lausn málsinsDeilan snýst um virðismat á kennarastarfinu sem hefur tafist.„Fólk lítur á þetta núna eins og það sé verið að rétta okkur hugmynd að nýju samkomulagi sem er bara rýrari samningur en sá sem er á borðinu núna og við getum ekki samþykkt þær br