Árekstur varð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í kvöld þar sem ökumaður bifreiðar keyrði utan í tvo aðra bíla. Engin slys urðu á fólki en nokkuð er um umferðartafir á svæðinu á meðan unnið er að því að hreinsa vettvanginn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.