Fundað um hagræðingaraðgerðir hjá Seltjarnarnesbæ

Fundað verður á morgun um næstu skref hagræðingar á Seltjarnarnesi þar sem rekstur hefur verið afar þungur að undanförnu. Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri segir að meira verði ljóst eftir fundinn. Hann vildi ekki tjá sig um hvort ráðist yrði í uppsagnir eða ekki. Þegar hafi verið kynnt yfirvinnu og ráðningarbann í sveitarfélaginu.Erfiður rekstur er hjá mörgum sveitarfélögum sem mörg hver hafa ráðist í hagræðingaraðgerðir. Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og Hafnarfirði eru nýjasta dæmið um það en 23 störf voru lögð niður í Hafnarfirði í dag. Þremur var boðið nýtt starf.Halli á A hluta í ársreikningi hjá Seltjarnarnesbæ er rúmur milljarður á síðustu þremur árum. Þegar hefur bæjarstjóri lagt til að lækka laun sín um tíu prósent og hafa bæjarfulltrúar lækkað sín laun.
Fundað um hagræðingaraðgerðir hjá Seltjarnarnesbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar