Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, segir að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í uppsagnir hjá bænum svo hægt væri að bregðast við slæmri fjárhagsstöðu bæjarins.„Í árshlutauppgjöri kemur í ljós að frávikin í rekstrarniðurstöðu bæjarins eru upp á 2,8 milljarða tæpa, rekstrarniðurstaðan var þannig að það var mínus upp á 2,4 milljarða tæpa,“ segir Þórður.„En það hafði verið gert ráð fyrir rúmum fjögur hundruð milljónum í hagnað eða afgangi af rekstri bæjarins.“Leggja á niður 23 störf sem eru samtals 21,6 stöðugildi. Þremur starfsmönnum verða boðin ný störf. Takmarka á ráðningar hjá Hafnarfjarðarbæ og allar ráðningar í störf utan grunnþjónustu verða lagðar fyrir ráðningarnefnd.Hann segir að ekki verði ráðist í frekari uppsagnir. Uppsagnirnar náðu til starfa í ráðhúsinu en ekki f