Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda

Forstjóri Samskipa fullyrðir að vilji nýrra eigenda standi til þess að efla starfsemina á Íslandi. Íslendingar hafa haldið um stjórnartaumana í félaginu í 80 ár en það er nú komið að fullu í erlenda eigu.Kaup spænska fyrirtækisins Boluda á Samskipum í gær vöktu töluverða athygli. Samskip á sér langa sögu á Íslandi, voru stofnuð 1990 og byggð á grunni skipadeildar Sambandsins sáluga sem var stofnuð árið 1946. Félagið hefur verið skráð í Hollandi síðan 2007 en stór hluti starfseminnar er hér á landi og forstjóri samstæðunnar fullyrðir að svo verði áfram.„Það mun mjög lítið breytast til að byrja með en svo erum við mjög spenntir að efla starfsemina frekar og það getur komið annað hvort með því að bæta við siglingaleiðum eða bæta við nýjum skipum. Boluda hópurinn er mjög spenntur að fjárfesta
Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar