Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025.