„Mér finnst þetta einkennileg nálgun hjá Bandalagi íslenskra listamanna“

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogsbæjar segir ályktun Bandalags íslenskra listamanna undarlega. Félagið gagnrýndi harðlega í gær þá ákvörðun Kópavogsbæjar um að mála yfir útilistaverk listakonunnar Theresu Himmer í Hamraborg.„Í þessari ályktun er fjallað um þetta eins og verkið sé varanlegt listaverk í eigu bæjarins, en samkvæmt samkomulagi eða samningi var alveg ljóst að þetta var og er tímabundið vegglistaverk sem samkvæmt samningi átti að standa í þrjú ár.“Listaverkið hafði þó staðið lengur en þrjú ár á torginu og segir Ásdís það hafa verið skýrt í samningi að ekki væri um varanlegt listaverk að ræða.„Hins vegar var raunin sú að þetta vegglistaverk hefur staðið hér á torginu okkar í sjö ár og mér finnst bara mikilvægt að halda því til haga að hér var því um tímabundið vegglistav
„Mér finnst þetta einkennileg nálgun hjá Bandalagi íslenskra listamanna“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar