Fyrirhuguð fækkun lögregluumdæma á Íslandi úr níu í þrjú hefur verið milli tannanna á fólki - sérstaklega utan höfuðborgarsvæðisins hefur fólk lýst áhyggjum af aukinni samþjöppun þjónustu. Lögreglumenn segjast sumir ekki kannast við ummæli dómsmálaráðherra - að ákall um breytingu sem þessa hafi komið innan úr lögreglunni.Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var rætt við lögreglumenn og lögreglustjóra og tillagan rýnd - hvort hún verði til bóta og efli löggæslu í landinu - eða sé enn eitt dæmið um hagræðingu sem færi þjónustuna fjær fólki í dreifðari byggðum.Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur fallið í grýttan farveg í dreifðari byggðum landsins.„V