Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku

Nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í dag við Ilulissat, þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður ekki síst fyrir nálægðina við Diskóflóa og tignarlegan skriðjökul sem nær út í Ilulissat-fjörð og hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 2004.Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, var fyrstur til að stíga af borði Airbus-þotu Air Greenland frá Kaupmannahöfn þegar hún lenti á flugvellinum fyrr í dag. Börn veifuðu fánum og kór klæddur þjóðbúningum söng fyrir Nielsen þegar hann steig inn í nýju flugstöðina sem er 5.500 fermetrar að stærð.Flugvöllurinn markar tímamót í ferðalögum til Grænlands og opnar nýjar leiðir fyrir ferðalanga sem vilja sækja landið heim. Rúmlega tveggja kílómetra flugbraut leysir 845 metra braut af hólmi sem auðveldar
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar