Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnaraðgerðir. Auk þriðju hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg í vikunni hafa borist fréttir af fjölda uppsagna á opinberum markaði.Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í gær og sjö fengu tímabundna ráðningarsamninga sína ekki endurnýjaða. Sjúkratryggingar Íslands fækkuðu störfum um sjö stöðugildi og sömuleiðis voru uppsagnir hjá ÁTVR í vikunni. Stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar var fækkað um 74 á þriðjudaginn og 50 sagt upp.Kári Sigurðsson formaður Sameykis hefur gagnrýnt hvernig Reykjavíkurborg stóð að uppsögnunum og segir borgarstjóra hafa farið með rangt mál í Kastljósi. > Það var áhugavert að Hildur borgarstjóri hafi komið þarna í viðtal í Kastljósi og talað