23 sagt upp og þrír endurráðnir

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að fækka um 18,6 stöðugildi hjá bænum á næsta ári. Með þessu ætlar bærinn að lækka rekstrarkostnað um 330 milljónir á ári. Leggja á niður 23 störf sem eru samtals 21,6 stöðugildi. Þremur starfsmönnum verða boðin ný störf. Uppsagnirnar taka á stjórnunar- sérfræði- og stoðstörfum á öllum sviðum sveitarfélagsins.Í tilkynningu bæjarins segir að ráðist sé í hagræðingu til að bregðast við fjárhagsstöðu bæjarins. Hún sé liður í að tryggja sjálfbærni í rekstri til lengri tíma og koma í veg fyrir að fjárhagsstaðan verði alvarlegri. Takmarka á ráðningar hjá Hafnarfjarðarbæ og allar ráðningar í störf utan grunnþjónustu verða lagðar fyrir ráðningarnefnd.
23 sagt upp og þrír endurráðnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar