Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Bogi segir að túlka megi úrslitin í Brasilíu og Serbíu sem tap þjóðernissinnaðra pópúlista þar sem ungt fólk hafi tekið mikinn þátt og verið virkt í kosningabaráttunni. ÓVÆNTUR SIGUR LULA Flávio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forseta Jair Bolsonaros, fékk flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninga í Brasilíu og flestir bjuggust við því að hann ynni auðveldan sigur í síðari umferðinni á sunnudag. Svo fór þó ekki, stuðningsfólki Lula da Silva forseta tókst að boða út fjölmennt lið ungs fólks sem kallaði sig „Her Lulas“ ( Exército do Lula ). Þau stofnuðu WhatsApp-hóp sem náði mik