Hamsatólginni bjargað

Eini framleiðandi hamsatólgar fær framhaldslíf því fyrirtækið Stóruvellir hefur verið selt. Nýir eigendur ætla að halda framleiðslunni áfram en í september var útlit fyrir að hún gæti stöðvast. Fréttastofa ræddi í lok september við Garðar Jónsson, eiganda Stóruvalla, sem greindi frá því að fyrirtækið hætti væntanlega starfsemi þegar hann settist í helgan stein, eftir rúmlega 30 ára bræðslu.Vísir greinir frá því í dag að nýr eigandi sé kominn að fyrirtækinu. Garðar hefur selt reksturinn til Húsavíkur. Hann og kaupandinn vinna saman fyrst um sinn en síðan taka nýir eigendur alfarið að sér framleiðslu hamsatólgs og útikerta sem Stóruvellir hafa framleitt og selt frá 1993.
Hamsatólginni bjargað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar