Nýr alþjóðaflugvöllur verður opnaður við Ilulissat, þriðja stærsta bæ Grænlands, í dag. Bæði Icelandair og Air Greenland hyggjast fljúga þangað á Airbus-þotum en hann er með 2.200 metra langri flugbraut, sem leysir af völl með aðeins 845 metra langri braut við hliðina.