Þrjú olíuskip í ljósum logum á Hormússundi

Eldur logar í þremur olíuskipum á Hormússundi eftir að þau sigldu á tundurdufl samkvæmt tilkynningu íranska byltingarvarðarins. Skipin hafi verið á ólögmætri siglingu um suðurhluta sundsins með slökkt á ratsjám og leiðsögukerfum.Áhafnir skipanna hafi virt að vettugi viðvaranir frá sjóher byltingarvarðarins. Hvorki liggur fyrir hvenær atvikið varð né undir fánum hvaða ríkja skipin sigla. Íranar hafa haldið Hormússundi nánast alveg lokuðu frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á landið í febrúarlok.Á friðartímum fer um fimmtungur olíu- og gasflutninga heimsins um sundið. Íransher hefur ítrekað sakað miðstjórn Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum um að hvetja sjófarendur til að nýta siglingaleið meðfram strönd Ómans sem stjórnvöld í Teheran lýsa bannsvæði.Það svæði er þéttsetið tundurduf
Þrjú olíuskip í ljósum logum á Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar