Eiginmaður sem gaf konunni sinni nýra óttast að margir Íslendingar séu með nýrnakvilla án þess að vita af því. Hann hvetur fólk til þess að fylgjast með blóðþrýstingnum, fólk geti verið veikt um árabil án þess að bregðast við. Allt gekk upp fyrir sjö árum síðan þegar eiginkona hans þurfti loksins nýra eftir að hafa lifað með nýrnasjúkdóm í tuttugu ár. Þau segja líf nýrnagjafa nánast ekkert breytast og segjast alltaf halda upp á afmæli nýrnagjafarinnar.