Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. Hraðakstur er álitinn ein helsta orsök alvarlegra umferðarslysa og banaslysa, ekki síst meðal ungs fólks, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.Maður sem ungur að árum varð valdur að banaslysi segir reynslusögu sína við hefðbundna minningarathöfn við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi auk þess sem Halla Tómasdóttir forseti og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja ávörp.Mikil umræða hefur verið um hraðakstur meðal ungs fólks eftir að fjögur ungmenni létust í tveimur slysum á þessu ári og var meðal annars til umfjöllunar á umferðarþingi í september.Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur stungið upp á að auka aðgengi ungs fólks að akstursí