Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum

Verðbólgan var 5,9 prósent í október. Það er jafnmikil verðbólga og í síðasta mánuði.Eldsneytisverð hefur hækkað áfram og það veldur meiri verðbólgu en annars væri. Dísillinn hækkaði um 11,2 prósent og bensín um 8,0 prósent. Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár. Hún fór fjórum sinnum undir fjögur prósent á síðasta ári. Annars hefur hún verið yfir því marki allt frá því í janúar 2021.Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5 prósent. Þegar samið var um að kjarasamningum yrði ekki sagt upp hétu ríki og sveitarfélög því að hækka gjaldskrár ekki um meira en 2,5 prósent á næsta ári. Vikmörk Seðlabankans eru 1,0 og 4,0 prósent. Ef verðbólgan fer út fyrir þau mörk þarf að meta efnahagsaðstæður.Fréttin verður uppfærð.
Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar