Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir

Háskóli Íslands hefur birt yfirlit yfir skólagjöld sem erlendir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða að greiða til að stunda nám við skólann. Upphæðirnar nema frá 1,45 milljónum króna upp í 3,25 milljónir fyrir veturinn.Skólagjöld á nemendur frá ríkjum utan EES verða tekin upp á næsta ári. Það var samþykkt með lögum frá Alþingi í sumar. Nemar frá Færeyjum, Grænlandi og Sviss eru undanþegnir skólagjöldunum þrátt fyrir að lönd þeirra séu ekki hluti af Evrópska efnahagssvæðinu.Lægstu skólagjöldin eru fyrir grunnnám á menntavísindasviði og hugvísindasviði, 1,45 milljónir. Meistaranám á þessum sviðum, nám á félagsvísindasviði og nám í ferðaþjónustu á verkfræði- og náttúruvísindasviði kosta 2,35 milljónir króna. Tölfræðinám á verkfræði- og náttúruvísindasviði kostar 2,8 mill
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar