Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun, og Arna Guðmundsdóttir, innkirtlalæknir á Landspítala, segja notkun ólöglegra peptíða geta verið „rússneska rúllettu“. Fólk eigi ekki að sprauta sig með neinu sem það viti ekki hvað er. Þau segja lögleg peptíð byltingu og það séu bjartar hliðar á þeim en líka dökkar. Arna og Viðar voru til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun.