Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja þau 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitarfélaga nær aðeins út að þessari fjarlægð frá landi og einnig yfirráðasvæði eigenda jarða sem liggja að sjó. Sveitarfélög hafa lengi reynt að fá þessu breytt og vilja hafa frekara skipulagsvald en þarna segir og geta haft um það að segja hvað fer í sjóinn inni í fjörðum. Þá hafa Landssamtök sjávarjarða sömuleiðis lengi kvartað yfir þessum mörkum. ÁFANGASIGUR AÐ AÐILD LANDEIGENDANNA HAFI VERIÐ VIÐURKENND Í átökum um fiskeldi í Seyðisfirði hefur meðal annars verið tekist á um hvort landeigendur sex jarða, þar sem sjókvíar fyrirtækisins Kaldvíkur eru fyrirhugaðar undan landi, eigi aðild að umsókn um byggingarleyfi fyrir þessum mannvirkjum til