Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir fengu átta mánaða dóm og einn sex mánaða. Refsingar þeirra allra eru skilorðsbundnar svo þeir afplána ekki nema þeir brjóti aftur af sér.Einn mannanna mætti fyrir dóm við þingfestingu og kvaðst saklaus. Hann fór af landi brott áður en aðalmeðferðin fór fram. Þrátt fyrir tilraunir ákæruvaldsins tókst ekki að hafa uppi á honum. Þó er vitað að hann vissi af aðalmeðferðinni þar sem hann hafði nýlega verið í sambandi við verjanda sinn. Sannað þótti að einn sakborninga hefði skipulagt og undirbúið íkveikjuna, að annar maðurinn hefði átt að kveikja í bílnum en það hefði ekki tekist og að þriðji maðurinn hefði að lokum kveikt í bílnum. Sannað þótti