Síldarvertíðinni fer að ljúka hjá flestum uppsjávarútgerðum landsins. Kvótinn í norsk-íslenskri síld er að klárast og þá hafa sumar útgerðir jafnvel klárað kvóta í sumargotssíld líka.Uppsjávarskip Eskju, Aðalsteinn Jónsson, er á síldveiðum en skipið kom á miðin í fyrradag og tók fyrsta tog á Rauða torginu svonefnda, sem eru fiskimið austan við landið.Þegar fréttastofa náði sambandi við brúnna var skipið þó komið nokkuð norðar í leit að síldinni. Þar stóð Þórhallur Hjaltason stýrimaður vaktina og segir hann misvel hafa gengið á vertíðinni.„Hún hefur gengið svona þokkalega en þetta hefur verið svolítið svona hark,“ segir Þórhallur. „Það eru svona litlir blettir og fljótir að klárast og svo hefur veðrið ekki verið að hjálpa til heldur.“ Síldarstofnar Veiðar á norsk-íslenskri síld eru stundaða