Leggja niður æviskipun næstæðstu saksóknara

Dómsmálaráðuneytið hefur birt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda sem gengur út á að fella niður embætti vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara. Lögum samkvæmt er hægt að skipa ótímabundið í þessi embætti. Sá sem hlýtur skipun í embættið heldur því þar til hann fer á eftirlaun eða hættir sjálfviljugur. Dómsmálaráðuneytið vill breyta þessu þannig að ótímabundin skipun í embættið falli niður. Þess í stað geti ríkissaksóknari og héraðssaksóknari valið sér staðgengla í embættið til allt að fimm ára. DEILUR UM SÍÐASTA VARARÍKISSAKSÓKNARA Helgi Magnús Gunnarsson var síðasti maðurinn til að gegna embætti vararíkissaksóknara. Hann lét af starfi fyrir rúmlega ári síðan eftir að hafa neitað því að vera fluttur til í starfi. Þá hafði Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari óskað eftir því a
Leggja niður æviskipun næstæðstu saksóknara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar