Hvasst er fram eftir morgni suðvestantil í dag og er gul viðvörun í gildi undir Eyjafjöllum þar sem von er á hvassviðri með snörpum vindhviðum. Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðurlandi til 08:00 í dag og til 09:00 á Faxaflóa. Varasamt veður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind á meðan en allsnarpar vindhviður geta orðið við fjöll á Vesturlandi.