Flokkar ísraelskra araba mælast með 19 sæti

Flokkar ísraelskra araba bæta við sig þingsætum nú þegar 92% atkvæða hafa verið talin. Flokkarnir eru tveir, Sameiginlegi listinn sem er nú með tólf sæti og Ra'am sem er með sjö. Samanlagt eru þeir með 19 sæti.Það er næstum því tvöföldun á fylgi en á síðasta ári voru flokkarnir með tíu sæti samtals. Kjörsókn meðal araba sem búa í Ísrael jókst um 50% frá síðustu kosningum.Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, er enn þá stærstur. Um tíma mældist hann með 27 þingsæti en hefur misst eitt og er nú með 26. Næststærsti flokkurinn, Yashar-flokkur Gadi Eisenkots, mældist áður með 22 sæti en mælist nú með 21. HAFNA SAMSTARFI VIÐ ARABAFLOKKA Netanjahú og Eisenkot leiða blokkirnar tvær sem flokkar í framboði mynduðu fyrir þessar kosningar en ljóst er að hvorug þeirra nær hreinum meir
Flokkar ísraelskra araba mælast með 19 sæti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar