Það blæs hressilega suðvestan til og við fjöll á Vesturlandi og undir Eyjafjöllum geta orðið allsnarpar vindhviður. Gular viðvaranir tóku gildi síðla nætur en falla úr gildi snemma morguns. Alldjúp lægð við suðausturströnd Grænlands heldur mildum suðlægum áttum að Íslandi. Fremur vætusamt um landið vestanvert og á köflum sunnantil en Norðaustur- og Austurland sleppa að mestu við rigningu.Veðurspáin er svohljóðandi:Austan 13-20 m/s og rigning, hvassast undir Eyjafjöllum, en lengst af þurrt fyrir norðan og austan. Snýst í sunnan 5-13 m/s um hádegi og styttir víða upp, fyrst suðvestanlands, en áfram dálítil væta suðaustan- og austanlands. Bætir í úrkomu þar í kvöld, en stöku skúrir vestanlands. Hiti 6 til 12 stig.Sunnan og suðvestan 5-13 á morgun. Skúrir vestantil, annars þurrt og bjart með k