Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er nú með það til skoðunar að bjóða viðskiptavinum sínum upp á heimsendingu á vörum. Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir að mögulegar útfærslur hafi verið til skoðunar um nokkurt skeið. Lykilatriðið í hennar huga er að tryggja ábyrga sölu, að áfengi verði ekki afhent fólki yngra en 20 ára.