Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara sem kalla sig Distributed Denial of Secrets, eða Dreifing á afneitun leyndarmála.Nafn þeirra er vísun í tegund tölvuárása sem nefnist distributed denial of service, en það er dreifð álagsárás þar sem margar tölvur senda gögn á sama tíma á einn vefþjón til að sliga hann og gera hann óvirkan. VILJA AUÐVELDA EFTIRLIT MEÐ STÖRFUM STJÓRNVALDA Gögnin sem samtökin gerðu opinber innihalda nöfn, símanúmer, netföng og starfsheiti starfsmanna stofnana á borð við innflytjenda- og tollaeftirlitið (ICE) toll- og landamæraeftirlitið (CBP) og stofnun sem fer með netöryggi og öryggi innviða (CISA).Þá kemur fram hvaða starfsmenn sinna sértækum aðgerðum, eftir