Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáleysi eftir að hraðlest ók aftan á kyrrstæða lest í sveitarfélaginu Toledo í gær, miðvikudag.Ákæra verður einnig gefin út á hendur starfsmönnum Atocha-stjórnstöðvarinnar sem leyfðu lestum að halda áfram för á öðru kerfi eftir að tæknivandamál komu upp sem gerðu það að verkum að átta lestir stöðvuðust.Stutt er í þingkosningar á Spáni en þær verða haldnar 29. nóvember. Allir stjórnmálaflokkar hafa sagst munu gera hlé á kosningabaráttu sinni í ljósi atburðanna en ekki er ósennilegt að samgöngur verði nú fyrirferðameiri í málflutningi þeirra.Mikið kurr er meðal Spánverja um ástand lestarinnviða sem eru orðnir gamlir og úreltir. LESTARSTJÓRAR FENGU