Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun

Albönsk stjórnvöld hafa ákveðið að sekta róstusama mótmælendur. Sektin hljóðar upp á 500 þúsund albanska leks, sem samsvarar um það bil 750 þúsund íslenskum krónum. Vert er að geta þess að meðallaun Albana fyrir skatt eru tæpar 130 þúsund krónur.Frá mótmælum í Tirana, höfuðborg Albaníu, 24. október.AP / Hameraldi AgolliNámsmenn og fleiri hafa mótmælt í Albaníu síðan um miðjan október, fyrst friðsamlega en síðan færðist harka í leikinn. Víða hefur slegið í brýnu á milli mótmælenda og lögreglumanna, ekki síst í höfuðborginni Tirana.Kröfur mótmælenda snúa að lökum aðbúnaði í skólum, spillingu, vandamálum í heilbrigðiskerfinu og skorti á tækifærum fyrir ungt fólk. Þá krefjast þeir afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama.
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar