Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar

Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október.Skotmark þrjótanna voru yfir milljón nafnnúmer Moldóva, sem svipa til kennitalna. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum í landinu náðu hakkararnir að sækja 750.000 gagnamengi.Maia Sandu forseti Moldóvu hefur boðað til fundar með þjóðaröryggisráðinu á næstu dögum og á þá að reyna að kortleggja árásina betur.Vasile Tofan forsætisráðherra sagði að ýmislegt benti til þess að árásin fæli í sér „víðtækari herferð þar sem erlendir ríkisaðilar koma við sögu“.Meðal þeirra gagna sem sótt var að voru nöfn, fæðingardagur, heilsufars- og fjárhagsupplýsingar Moldóva. Árásin er nú til rannsóknar en ekki liggur enn fyrir hverjir stóðu að baki henni.
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar